Meiri menning - minna umstang
Margföld menningarumfjöllun
Íslenskum fjölmiðlum býðst nú að fá aðgang að viðburðasafni sem dekkar landið allt. Ókeypis.
Þetta er hugsað til að auðvelda fjölmiðlum að fjalla um menningu og viðburði hér og þar. Eins er hægt að fá yfirlit yfir viðburði í nærsveitum, fyrir staðbundnari miðla.
- Öll sem fram koma. Listamenn, hljómsveitir, sýningar, lið. Með myndum og ítarefni.
- Viðburðir og tímasetningar. Allar upplýsingar, miðaverð, lýsingar.
- Gervigreindin grisjar svo hægt sé að sjá viðburði fyrir krakka, fullorðna, eldri borgara, 80s fólkið, LGBTQ+ og ýmsa aðra hópa.
- Einföld afritun. Einfaldlega smellt til að afrita texta eða hlaða niður myndum.
Þetta styttir tíma og auðveldar vinnu. Að setja upp viðburðasíðu eða dálk tekur nú mínútur en ekki klukkutíma.
Svo er til meira
Miðlar geta einnig fengið aðgang að viðburðasafni með því að nota API. Þá er hægt að birta þá viðburði sem miðlarnir hafa áhuga á á vefjum miðlanna.