Promogogo

Einfalt og þægilegt

Bættu viðburði á listann

Það er lygilega auðvelt og ókeypis.

Við bjóðum upp á nokkrar leiðir til að bæta viðburðum á listann.

  • Sjálfkrafa. Ef viðburðurinn er í sölu hjá Tix, Stubbi, Moment, eða MiðiX þá dettur hann inn sjálfkrafa. Eins ef hann er skráður í Hvirfil eða á einhverjum "Visit landshluti" vef. Við vöktum líka alls kyns vefi eftir beiðni. Ef þú vilt að við vöktum vefinn þinn, sendu okkur tölvupóst á vaktavef@mobilitus.is.
  • Með tölvupósti. Sendu okkur upplýsingar á skravidburd@mobilitus.is. Sendu með myndum og þeim upplýsingum sem þarf. "Hljómsveitin Ný Íslensk Jólalög verður í Háskólabíó klukkan 20:00 þann 24. desember. Miðaverð er 2.500 krónur."
    Gervigreindarálfarnir okkar taka til hendinni og merkja þetta almennilega upp.
  • Sendu okkur link Ef viðburðurinn er þegar til á öðrum vefjum, sendu okkur link á innflutningsgræjunni. Gervigreindarálfarnir geta þá sótt upplýsingar og myndir sjálfkrafa.

Þetta á ekki að vera neitt mál.

Svo er til meira

Við getum alltaf hjálpað til við að setja upp viðburðina. Það er bara að hafa samband.

© 2026 Mobilitus, Inc. All rights reserved.