Promogogo

Hvað getum við gert fyrir fjölmiðla?

Meiri tekjur - meira efni

Snúum vörn í sókn gagnvart auglýsingum á samfélagsmiðlum og sækjum tekjurnar heim. Fáum fleiri síðuflettingar og veitum lesendum betri þjónustu.

Með því að safna saman upplýsingum um alla viðburði á öllum sviðum um land allt getum við boðið fjölmiðlum og viðburðahöldurum að:

  • "boosta" viðburðum á staðarmiðlum. rétt eins og á Facebook eða Instagram. Jafn auðvelt. Jafn áhrifaríkt.
  • auðvelda alla umfjöllun um listir og dægradvöl. Allar upplýsingar, miðaverð, lýsingar.
  • birta valda eða flokkaða viðburði á vef eða í appi til að bæta þjónustu, fjölga síðuflettingum og gleðja lesendur. Svo mæta fleiri á viðburðina í kjölfarið sem treystir stoðir samfélagsins.

Hið opinbera og aðrir sem setja umtalsvert kynningarfé beint til Facebook geta nú loksins náð sömu áhrifum innanlands. Það er samfélagsleg ábyrgð sem styrkir íslenska fjölmiðlun.

© 2026 Mobilitus, Inc. All rights reserved.

Tækniþróunarsjóður Mobilitus ehf. vinnur nú að verkefninu Víðmiðlun vélgreindra viðburðaupplýsinga, sem fékk Vaxtarstyrk frá Tækniþróunarsjóði fyrir árin 2023-2024. Gjugg og viðburðasafnið á Vísi.is byggir á þeim grunni.