Viðburðir á Visit Reykjavík
Mobilitus ·
Viðburðakerfi Mobilitus sankar að sér upplýsingum um viðburði víða að og raðar saman eftir kúnstarinnar reglum. Gervigreindarálfarnir flokka þá eftir tegundum og markhópum til að gera gestum og gangandi auðvelt að finna eitthvað við sitt hæfi.
Visit Reykjavík, sem er sameiginlegt verkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu ásamt ýmsum hagsmunaaðilum og fyrirtækjum, hefur nú fengið viðburðaþjónustu Mobilitus til liðs við sig svo ferðamenn geti fengið flokkaðar og ítarlegar upplýsingar um viðburði sem eiga sér stað á vegum sveitarfélaganna og annarra þátttakenda.