Viðburðasafnið á Vísi byggir á grunni Gjugg
Mobilitus ehf. vinnur að verkefninu Víðmiðlun vélgreindra viðburðaupplýsinga, sem fékk Vaxtarstyrk frá Tækniþróunarsjóði fyrir árin 2023–2024. Gjugg og viðburðasafnið á Vísi.is byggir á þeim grunni.
Markmiðið er einfalt: að safna saman öllum viðburðum, á öllum sviðum, um allt land — og gera þá aðgengilega bæði almenningi og fjölmiðlum.
Hvernig virkar þetta?
Gervigreindarálfarnir okkar finna viðburði héðan og þaðan, kynna sér þá og sortera. Þeir sækja upplýsingar úr sölukerfum eins og Tix og MiðiX, vakta Facebook-síður og lesa úr tölvupóstum sem viðburðahaldarar senda okkur.
Útkoman birtist ókeypis á visir.is/vidburdir, og viðburðahaldarar geta bætt við sínum eigin viðburðum eða auglýst þá á forsíðu Vísis.