Gjugg fær nýsköpunarverðlaun
á degi íslenskrar tónlistar
Í smáforritinu Gjugg safnast saman upplýsingar um alla viðburði á öllum sviðum um land allt. Helga Waage og Þórarinn Stefánsson stofnendur Mobilitus, sem á og rekur Gjugg, tóku við verðlaununum á hátíðarstund í Hörpu í hádeginu.
“Þetta er bara byrjunin,” sagði Þórarinn við það tilefni. “Við teljum hægt að fá miklu fleiri til að standa upp úr sófunum, slökkva á Netflix og fara og gera eitthvað skemmtilegt, ef það bara vissi af því.” Næstu misseri fara í að koma þeim lausnum í umferð hjá íslenskum sem erlendum vefmiðlum, en viðburðaskráin sem Gjugg byggir á er alþjóðleg í eðli sínu.
Gjugg veit af yfir 3200 tónleikum á Íslandi á árinu sem er að líða. Í tilefni verðlaunanna tók Mobilitus saman yfirlit yfir þá alla og setti fram í annál um íslenska tónlistarárið.