Allir viðburðir í kirkjum landsins á einum stað
Mobilitus ·
Þjóðkirkjan hefur sett í loftið nýja vefsíðu, og er markmiðið að gera þjónustu kirkjunnar sýnilegri og svara spurningum um hlutverk Þjóðkirkjunnar og þá þjónustu sem hún veitir. Þá hefur kirkjan kynnt nýtt merki Þjóðkirkjunnar, sem er einfaldur kross á einlitum grunni.
Mobilitus leggur til viðburðahluta síðunnar, þar sem kerfi Mobilitus safnar saman öllum viðburðum í öllum kirkjum, sem eru ríflega 330.
En viðburðirnir eru ekki allir aðgengilegir á netinu og settum við því upp gervigreindargátt sem tekur við póstum frá prestum og öðrum staðarhöldurum, þar sem texta á mannamáli er breytt í viðburði. Gervigreindarálfarnir okkar eiga sem sagt presta sem pennavini.
Sjá nánar hér: Kirkjuviðburðir