Blue Dot Fever
Krankleikinn sem heltekur listamann þegar allt of mikið er af lausum sætum á miðasölukortinu.
Þegar við unnum fyrir Ticketmaster komu nýir herrar sem ákváðu að megináhersla skyldi lögð á að fólk gæti valið sætin sín á korti af tónleikahúsinu. Þetta væri það sem fólk vildi og kerfið skyldi endurhannað miðað við þetta.
Við - og aðrir reynsluboltar í miðasölutækninni - vöruðum við þessu því í þessu væru fólgnar tvær megináhættur:
- Þegar mikið væri að gera þyrfti að takmarka aðgang að kerfinu svo fólk næði að taka frá sæti og kaupa þau. Þetta myndi skapa langar biðraðir áður en fólk kæmist inn í miðasöluna.
- Þetta yrði til þess að þegar miðasala gengi hægt þá sæi fólk að húsið væri hálf-tómt og það væri letjandi. Hver vill fara á gigg sem aðrir vilja ekki fara á?
Bent var á að betra væri að leyfa fólki að velja svæði og svo sýna þeim hvaða sæti væru best af þeim lausu sætum sem þar væru. Fólk fengi þá skýrar upplýsingar um hvað það væri að kaupa en kerfi gæti annað miklu miklu fleirum í einu.
Þetta þótti leiðinlegt tuð og menn héldu fast við ákvörðunina.
Nú, þegar harðnar í ári í tónlistarbransanum eins og annars staðar, þá hefur dúkkað upp umfjöllun um Blue Dot Fever - þegar miðasala stoppar beinlínis af því að það sést hversu illa viðkomandi gigg selst.
Æ tóld jú só!
Við vorum líka með algrím sem gat spáð fyrir um það á fyrst 15 mínútum miðasölunnar hvort uppselt yrði á viðburðinn 3-4 mánuðum síðar. Sá algrimur virkar ekki í dag því miðasölu á mið-klassa-viðburði hefur seinkað verulega. Fólk drattast við að taka ákvörðun fram á síðasta dag, sem eykur aukaverkanir Blue Dot Fever. Þess vegna er David Byrne að fara að spila í Eldborg en ekki Höllinni.
Og minni viðburðir fara illa út úr þessu líka. Fólk er farið að sleppa því að kaupa miða fyrirfram og borga bara við dyrnar, sem þýðir að listafólkið veit ekki hvort það kemur til með að geta borgað básúnuleikaranum fyrr en giggið er byrjað. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvort það er betra eða verra gigg eftir því sem fleiri andvökunætur út af peningamálum hafa verið í vikunni á undan.
Þ.a. ef þið ætlið að fara, kaupiði miða fyrr. Þá kaupa fleiri miða, og básunuleikarinn er ekki skilinn eftir heima. Og þá verður meira fjör.