TODMOBILE – HÁPUNKTAR
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
fös. 13.11.2026 20:00
Todmobile hlaut heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrr á árinu og býður nú til sérstakra hátíðartónleika þar sem farið verður yfir feril sveitarinnar, allt frá fyrstu árunum til dagsins í dag og allt þar á milli.
Hljómsveitina skipa þau Andrea Gylfadóttir, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Eyþór Arnalds, Eiður Arnarsson, Ólafur Hólm Einarsson og Kjartan Valdemarsson.
Sveitin verður ekki ein á ferð því með þeim verða Jónína Björt Gunnarsdóttir, Söngsveitin Filharmónía, Strokkvartettinn Siggi og Guðni Franzson.
Sérstakur gestur kvöldsins er Eyþór Ingi Gunnlaugsson sem hefur tekið þátt í mörgum stærstu tónleikaviðburðum sveitarinnar og hljóðritað með Todmobile tvær plötur.
Þessir tónleikar eru hátíð og þakkarvottur til þeirra fjölmörgu aðdáenda sem hafa fylgt Todmobile í gegnum áratugina. Kvöldið verður einstakt tækifæri til að upplifa
tónlist sveitarinnar í nýjum og glæsilegum búningi og um leið fagna þeirri viðurkenningu sem heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna eru.
Tryggðu þér miða strax.
Flytjendur
-
TODMOBILE
90s veisla á Sviðinu Selfossi
-
Andrea GylfadóttirHeiðursgestur
-
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
Höfundur tónlistar og tónlistarstjóri
-
Kjartan Valdemarsson
Meðleikari
-
Jónína Björt Gunnarsdóttir
Söngkonan flytur jólatónleika
-
Söngsveitin Fílharmónía70 manna blandaður kór sem hefur flutt fjölbreytta tónlist frá öllum tímabilum tónlistarsögunnar.
-
Strokkvartettinn Siggi / Siggi String QuartetFjölbreytt hljóðfærasamsetning
-
Guðni Franzson
Stjórnandi
-
Eyþór Ingi
Eyþór Ingi, Eythor Ingi
Bókanir/Contact: eythoringi@gmail.com