Eyþór Ingi
pop
Um flytjanda
Flúðir um Versló með Eyþóri Inga Eyþór Ingi mætir í Félgsheimilið Flúðum ásamt hljómsveitinni Babies þar sem flutt verða lög af ferli Eyþórs í bland við önnur uppáhalds. Kraftmiklir tónleikar sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta framhjá sér fara. Samstarf Eyþórs Inga og Babies hófst þegar þeir leiddu saman hesta sína til að heiðra Þursaflokkinn og Egil Ólafsson. Eyþór er þekktur fyrir söngröddina og léttan húmor. Hann hefur komið víða við í gegnum árin, bæði komið fram og gefið út efni undir eigin nafni og með hljómsveitum og artistum á borð við Todmobile, Lay Low, Stuðmenn, Eldberg, Atómskáld og Rock Paper Sisters. Á tónleikunum má búast við efni af ferli Eyþórs í bland við lög sem hann hefur gert ódauðleg í lifandi fluttningi. Komdu og upplifðu stemninguna á Flúðum ásamt Eyþóri Inga og hini mögnuðu Hljómsveit Babies.