Þorlákskirkja

Þorlákskirkja

Háaleiti, 815 Þorlákshöfn

Um staðinn


Þorlákskirkja var vígð 28. júlí 1985 af herra Pétri Sigurgeirssyni, biskupi Íslands. Tíu árum fyrr gaf Árnessýsla 18.000 fermetra lands undir kirkjugarð og um sama leyti var ákveðið að byggja kirkju í Þorlákshöfn.

Hönnuður kirkjunnar var Jörundur Pálsson, arkitekt og byggingarmeistari var Sverrir Sigurjónsson. Altaristaflan er múrrista gerð af Gunnsteini Gíslasyni. Hún heitir “Herra, bjarga þú mér” og byggir á 30. versi í 14. kafla Matteusarguðspjalls. Altari og prédikunarstóll eru úr íslensku grágrýti og teiknað af Jörundi Pálssyni, arkitekt og unnið í Steinsmiðju Sigurðar Helgasonar. Skírnarfonturinn er úr íslensku grágrýti og gabbro, einnig teiknað af Jörundi og unnið í sömu steinsmiðju.

Átján radda pípuorgel, sem Björgvin Tómasson smíðaði, kom í kirkjuna árið 1996. Í kirkjunni er flygill. Pílárar við altari, handrið á stiga upp á kórloft og handrið framan á kórlofti eru úr járni og myndefnið er tónkvísl. Sigurður Ólafsson, bifvélavirki og hagleiksmaður á járn og tré, smíðaði allt járnverk kirkjunnar, þar á meðal reku sem ber form fisks.

Viðburðir framundan

  • Kyrrðarbæn - Þorlákskirkja
    Kyrrðarbæn - Þorlákskirkja
    fim 19. nóv 2026 17:00
    Skoða viðburð
  • Kyrrðarbæn - Þorlákskirkja
    Kyrrðarbæn - Þorlákskirkja
    fim 26. nóv 2026 17:00
    Skoða viðburð
  • Fosteii, Emilía Hugrún og Grybos flytja jólalög
    Fosteii, Emilía Hugrún og Grybos flytja jólalög
    þri 1. des 2026 19:30
    Skoða viðburð
  • Jólatónleikar Lúðrasveitar Þorlákshafnar
    Jólatónleikar Lúðrasveitar Þorlákshafnar
    fim 17. des 2026 20:00
    Skoða viðburð