Hótel Búðir

Hótel Búðir

Búðir, Staðarsveit, 356 Snæfellsbær

Um staðinn

Hótel Búðir er tvímælalaust eitt fegursta sveitahótel á Íslandi í rúma tveggja stunda akstursfjarlægð frá Reykjavík. Þetta glæsilega hótel er einstakt í sinni röð útbúið öllum nútímaþægindum, andrúmsloftið er heillandi, þjónustan framúrskarandi og síðast en ekki síst; matur í sérflokki. Veitingastaðurinn hefur getið sér góðs orðs fyrir einstaka matargerð þar sem íslenskt gæðahráefni frá nágrönnum okkar á Snæfellsnesinu er í aðalhlutverki. Lambakjöt og ferskur fiskur er uppistaðan á matseðlinum ásamt lystugum forréttum og syndsamlegum eftirréttum. Ótrúlega fallegt útsýni á rómantískum stað. Kynngimagnaður Snæfellsjökull í vestur, Búðavík og Faxaflói, fjallgarðurinn á Snæfellsnesi, Búðahraun og umhverfi að ógleymdri Búðakirkju.


Viðburðir framundan

  • KK, fordrykkur, matur og gisting á Hótel Búðum. Val um tvær dagsetningar: 30. & 31. október. Kjör fyrir tvo.
    KK, fordrykkur, matur og gisting á Hótel Búðum. Val um tvær dagsetningar: 30. & 31. október. Kjör fyrir tvo.
    fös 30. okt 2026 15:00
    Skoða viðburð