Dómkirkjan í Reykjavík
Kirkjustræti, 101 Reykjavík
Um staðinn
„Dómkirkjan í Reykjavík er embættiskirkja biskups Íslands og þar með höfuðkirkja hinnar Lúthersku þjóðkirkju Íslands sem og sóknarkirkja nokkurra elstu hverfa Reykjavíkur. Hún er staðsett við Austurvöll, og við hlið hennar er Alþingishúsið. Frá endurreisn Alþingis 1845 hefur sú hefð haldist að þingsetning hefst með messu í Dómkirkjunni og þaðan leiðir dómkirkjuprestur svo þingmenn til Alþingis. (...) Upphaflega var ákveðið að reist skyldi dómkirkja í Reykjavík árið 1785 í kjölfar suðurlandsskjálfta sem ollu mjög miklum skemmdum í Skálholti.“ Kirkjan var friðuð árið 1973 og síðan gerð upp í áföngum.