Yltal með Tryggva og Hjalla
Vinnustofa Kjarval | Fantasíusalur, Austurstræti 12, 101 Reykjavík Kort
þri 24. nóv 2026 17:00
Það er ekki á hverjum degi sem Tryggvi Davíðsson og Hjálmar Gíslason setjast saman á svið. Þriðjudaginn 24. nóvember býður Reykjavík Fintech til yltals (e. fireside chat) með þeim báðum.
🔹 Tryggvi Davíðsson kom af alþjóðlegum fjármálamörkuðum, þar sem hann var m.a. um árabil stjórnandi hjá Barclays Capital í London og síðar hjá Íslandsbanka. Ásamt vini sínum, Hauki Skúlasyni, ákvað hann að gera hlutina öðruvísi og stofna „valdaminnsta banka í heimi“. Útkoman var indó, fyrsti áskorendabanki Íslands, sem hefur hrist upp í bankamarkaðnum. Tryggvi er framkvæmdastjóri indó, sem er meðal aðila Reykjavík Fintech og einn stofnaðila Nordic Fintech Lab, ásamt Arion banka, Íslandsbanka og Lucinity.
🔹 Hjálmar Gíslason (Hjalli) hefur stofnað fimm hugbúnaðarfyrirtæki á þremur áratugum. Hann stofnaði DataMarket árið 2008, í miðju hruni og með tvær hendur tómar, og seldi það bandaríska fyrirtækinu Qlik árið 2014. Eftir það stýrði hann vörustjórnun hjá Qlik í Boston, áður en hann sneri heim og stofnaði GRID, sem vinnur á mótum gervigreindar og töflureikna og er notað af sumum fremstu gervigreindarfyrirtækjum heims.
Yltal er óformlegt og persónulegt spjall. Ekkert handrit, heldur samtal sem fær að flæða frjálst um lífið, vegferðina og áhugaverð viðfangsefni. Þeir mæla líka með þremur áhugaverðum bókum hvor, sem verða ræddar. Í lokin verður opnað fyrir spurningar úr sal. Ásgeir Theodór Jóhannesson, framkvæmdastjóri Reykjavík Fintech, stýrir spjallinu.
✨ Við hefjum viðburðinn á því að bjóða Spesíu velkomna, nýjasta aðila klasans. Spesía er stofnuð af Georg Lúðvíkssyni, einum stofnenda og fyrrum forstjóra Meniga. Hann byggði upp eitt farsælasta fjártæknifyrirtæki landsins og hefur alla tíð brunnið fyrir því að hjálpa fólki með sín persónulegu fjármál. Bergur Ebbi Benediktsson, meðstofnandi Spesíu, segir nokkur orð í upphafi fundar.
🕔 Hús opnar kl. 16:30
🥂 Boðið verður upp á léttar veitingar
Viðburðurinn er öllum opinn. Hlökkum til að sjá ykkur!
👉 Skráning:
https://www.reykjavikfintech.is/#vidburdir/24-11-26