WR Suðurlandsmót og Skeiðleikar Geysis 2026
fös. 28.08.2026 14:00
WR Suðurlandsmót fer fram 27.-30. ágúst 2026 á Rangárbökkum og er gríðarleg tilhlökkun í loftinu fyrir síðasta móti ársins á Rangárbökkum!
Mótið er ætlað fullorðins flokkum og er opið.
Komi til þess að ekki náist viðunandi fjöldi í flokka gætu þeir verið felldir niður eða einungis riðin forkeppni.
Ungmenni mega skrá í T1, T2, F1 og V1 þar sem ekki var boðið upp á þessa flokka á Suðurlandsmóti yngri flokka. Aðrir flokkar eru ekki opnir ungmennum.
Fyrirspurnir vegna mótsins sendist á skraninggeysir@gmail.com
Mótstjóri:
Opið verður fyrir skráningar til sunnudagsins 23. ágúst kl. 23:59.
Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:
- Nái skráning ekki fjölda til úrslita getur flokkurinn fallið niður eða eingöngu riðin forkeppni.
- Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
- Mótið er World Ranking mót og mikilvægt að keppendur hafi kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og FEIF.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Meistaraflokkur
T1, T2, T3, T4, V1, V2, F1, F2, PP1
1.flokkur
T3, V2, F2, T4, PP1
2.flokkur
T3, T7, V2, F2, T4, PP1
Opinn flokkur í skeiði: P1, P2, P3
Skráningargjöld eru eftirfarandi:
10.000kr – Fullorðinsflokkar
Verð í skeiðgreinar 150m, 250m og 100m flugskeið er: 5.000kr
Sjáumst á Rangárbökkum!
Flytjendur
-
Hestamannafélagið GeysirHestamannafélagið Geysir var stofnað 27. nóvember 1949 í Hellubíói á Hellu. Félagssvæðið nær frá Þjórsá að Markarfljóti og eru félagsmenn um 900 talsins. Félagssvæði félagsins er á Rangárbökkum við Hellu.