Við erum þorpið – listin að vera leiðinlegt foreldri

Við erum þorpið – listin að vera leiðinlegt foreldri

Hafnarborg, Strandgata 34, 220 Hafnarfjörður Kort

fim 19. nóv 2026 19:30

Bústaðu viðburðinn!

Við blásum til þriggja frábærra funda um foreldrahlutverkið og unglingana okkar. Þrír fundir, þrír dagar, því við erum þorpið.

Þetta er 3. og síðasti fundurinn og yfirskriftin er: Listin að vera leiðinlegt foreldri.

Ársæll Arnarsson fjallar á hreinskilinn og hagnýtan hátt um þær áskoranir sem foreldrar standa frammi fyrir þegar „allir hinir mega“.

Hann ræðir hvernig kærleiksríkur agi, skýr mörk og sjálfsöryggi í foreldrahlutverkinu geta skapað gott umhverfi fyrir börn og unglinga til að dafna.

Jafnframt beinir hann sjónum að því sem gerist innra með foreldrum þegar þau takast á við kröfurnar sem fylgja uppeldi og leitast við að sinna hlutverki sínu af ábyrgð og umhyggju.