Vetrarsólstöður - Ásbjörg Jónsdóttir
Fríkirkjan í Reykjavík, Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavík Kort
mán 21. des 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!Heiða Árnadóttir og Ásbjörg Jónsdóttir flytja „Íhugun við vetrarsólstöður" þann 21. desember kl. 20 í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Verkið er byggt á hugleiðingum Ilmar Kristjánsdóttur guðfræðinema og leikkonu og prestanna Heiðrúnar Helgu, Bolla Péturs og Arnórs Bjarka.
Vetrarsólstöður eru vendipunktur í náttúrunni. Þær marka lengstu nótt ársins en um leið upphaf þess að daginn tekur að lengja á ný. Í þessum náttúrulega vendipunkti felst sterkt táknrænt gildi
sem býður upp á íhugun um myrkur og ljós, hvíld og endurnýjun, von, trú, umbreytingu og nýtt upphaf.
Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði og Fríkirkjunni í Reykjavík.
Engin aðgangseyrir er að tónleikunum öll velkomin
Um tónskáld:
Ásbjörg Jónsdóttir lauk meistaraprófi í tónsmíðum frá LHÍ árið 2018 og nam m.a. undir leiðsögn Hróðmars I. Sigurbjörnssonar, Úlfars I. Haraldssonar og Ken Steen. Hún hefur breiðan tónlistarlegan bakgrunn, allt frá djasssöng til kórastarfs en hefur þroskað tónsmíðagáfu sína jafnt og þétt í eftirminnilegum kammerverkum sem sameina léttleika og ljóðrænu.
Verk Ásbjargar hafa verið flutt víða, svo sem á Sumartónleikum í Skálholti, Óperudögum, 15:15, Performance 20/20 og "Quintessence" the Spring Senior Dance Concert í Hartt School of Music og alloft á Myrkum músíkdögum.
Tónlist Ásbjargar hefur m.a. verið flutt af Caput, Hljómeyki, Duo Harpverk, Elektra Ensemble, Dómkórnum í Reykjavík, Foot in the Door, Sigga String Quartet, Heiðu Árnadóttur, og Ástu Soffíu Þorgeirsdóttur.
Auk þess að sinna tónsmíðum vinnur Ásbjörg um þessar mundir að rannsókn um jazz á Íslandi í samstarfi við Þorbjörgu Daphne Hall og Oxford University Press, sinnir stöðu aðstoðarrannsakanda í stórri rannsókn leidda af Þorbjörgu Daphne Hall, styrkta af Rannsóknarsjóði Íslands um Kordu Samfóníu undir stjórn Sigrúnar Sævarsdóttur-Griffiths, stýrir tónlistarstarfi fyrir börn og kennir píanóleik.
Hún hefur gefið út bókina Endalaus gleði: syngjum saman (2019) með 12 nýjum frumsömdum barnalögum, vínylplötuna Home is where (2021) með verkum sérstaklega samin fyrir Akranesvita (samin 2015), Heiðu Árnadóttur, Hilmar Jensson, Þórdísi Gerði og Sunnu Friðjónsdóttur, myndband við Helgu EA2 (2021) samið fyrir Heiðu Árnadóttur, Yrkja vildi ég jörð (2022) með verkum fyrir saxófón og harmóníku og Mörsug (2025), bók- og tónverk.
Um flytjanda:
Heiða Árnadóttir hefur á ferli sínum lagt ríka áherslu á flutning samtímatónlistar, sem og þjóðlaga-, djass-, tilrauna- og ljóðatónlist. Heiða lauk mastersnámi úr Tónlistarháskólanum í Haag í Hollandi árið 2004.
Ásamt fjölda tónleika á Íslandi, þar sem hún hefur meðal annars frumflutt verk með Ensemble Adapter og Caput, hefur Heiða einnig komið fram í Hollandi, Belgíu, Frakklandi, Indlandi, Svíþjóð og Danmörku. Hún hefur flutt verk á Norrænum músíkdögum, Myrkum Músíkdögum, Iceland Airwaves, Sumartónleikum í Skálholti, Óperudögum, Jazzhátíð Reykjavíkur og ýmsum hátíðum erlendis eins og á hátíðartónleikum á tónlistarhátíðinni WOMEX í Kaupmannahöfn.
Heiða var tilnefnd sem söngkona ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum í flokki klassískrar tónlistar fyrir árin 2020 og 2023. Einnig vann hún Grímuverðlaunin sem söngvari ársins 2024 fyrir ljóðsöguna Mörsugur.
Heiða er lagahöfundur, textaskáld og söngkona í hljómsveitinni Mógil sem hafa gefið út 4 plötur. Hún var staðarlistamaður Myrkra músíkdaga 2020-2023 þar sem hún frumflutti fjölda verka eftir íslensk tónskáld.
Heiða gaf út plötuna “Tunglið og ég” 2023 ásamt píanóleikaranum Gunnari Gunnarssyni. Þar flytja þau lög tónskáldsins Michel Legrand við íslenska texta Árna Ísakssonar og Braga Valdimars Skúlasonar.