Velkomin á opnun sýningarinnar Kroppar og kassar

Velkomin á opnun sýningarinnar Kroppar og kassar

Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort

lau 10. okt 2026 14:00

Bústaðu viðburðinn!

Velkomin á opnun sýningarinnar Kroppar og kassar!

Vetrarsýning Barnabókasafns Norræna hússins opnar laugardaginn 10. október frá kl. 14:00–16:30.

Yngstu gestum er boðið að taka þátt í hreyfismiðju, skoða sýninguna og fara í ratleikinn Finndu Aalto! Þau sem finna alla hlutina geta farið í afgreiðslu bókasafnsins og fengið lítil verðlaun. Einnig verður föndur í boði í tengslum við sýninguna.

Sýningin Kroppar og kassar er byggð á bókinni Kurjens Kartta (Kort Trönunnar - ævintýri í bylgjuskógi) eftir Reetta Niemela og er prýdd fallegum myndskreytingum eftir Eri Shimatsuka.

Arkitektúr er allt í kringum okkur, þótt við tökum ekki alltaf eftir honum. Húsin og rýmin sem við dveljum í hafa áhrif á daglegt líf okkar – hvernig við hreyfum okkur, leikum, vinnum og erum saman.

En hvernig hefur hönnun og arkitektúr áhrif á okkur? Hvernig húsum viljum við búa í? Þurfum við ólík rými fyrir ólíkar athafnir – og hvað gerir rými gott?

Í hönnun Alvars Aalto var manneskjan ávallt í fyrirrúmi, og börn voru þar engin undantekning. Í teikningum sínum og skipulagi gerði Aalto ráð fyrir börnum og þörfum þeirra. Verk hans minna okkur á að börn eiga rétt á góðu daglegu lífi og umhverfi sem tekur mið af þeim.

Ókeypis er á sýningar og viðburði Norræna hússins og öll eru velkomin!

Aðgengi að barnabókasafni er niður stiga frá bókasafni eða með lyftu frá andyri og í gegnum sýningarýmið Hvelfingu.Starfsfólk á bókasafni veitir nánari upplýsingar og aðstoðar eftir þörfum.

Myndskreyting er eftir Eri Shimatsuka.