Valdimar

Valdimar

Græni hatturinn, Hafnarstræti 96, 600 Akureyri Kort

lau. 03.10.2026 21:00

ISK 8900.00
Miðar / Skráning

Hljómsveitin Valdimar heldur tónleika á Græna Hattinum þann 3. október. Græni Hatturinn er okkar uppáhalds tónleikastaður og við hlökkum mikið til.

Hljómsveitin hefur verið iðin við kolann undanfarið, gefið út þrjú ný lög og vinnur að nýrri plötu. Lagið Karlsvagninn hefur notið mikilla vinsælda og meðal annars setið á toppi vinsældalista Rásar 2. Á tónleikunum má búast við skemmtilegri blöndu af gömlum slögurum og glænýju efni.

Flytjendur

  • Valdimar
    Valdimar

    Hljómsveitin Valdimar mætir á svæðið og tekur sína stærstu slagara.