VAKA | Hádegistónleikar: Langeleik í 500 ár
Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort
fim. 17.09.2026 12:15
Ingrid Lingaas Fossum, tónlistarmaður, þjóðdansari og þjóðlagatónlistarmaður ársins í Noregi árið 2025, mun spila á norskt langspil. Á tónleikunum mun hún einnig rekja sögu norska langspilsins.
Viðburðurinn er hluti af Vaka þjóðlistahátíð
Öll velkomin.
Ingrid Lingaas Fossum er einn fremsti langeleik-leikari Noregs í dag – og hljóðfærið sem hún spilar á er náinn frændi íslenska langspilsins.
Langeleik á sér órofna a.m.k. 500 ára sögu í Noregi, og Ingrid er fyrsti einstaklingurinn í landi sínu til að ljúka meistaragráðu í hljóðfærinu frá Norsku tónlistarakademíunni. Hún hlaut nýverið tvenn verðlaun í Noregi: Þjóðlagatónlistarmaður ársins 2025 og Besta sólóplata ársins 2025 fyrir plötuna Eit halvt tusenår, verðlaun sem hún veitti viðtöku á Folkelarm-hátíðinni í Ósló í nóvember sl.
Flytjendur
-
Vaka þjóðlistahátíðFagnar lifandi hefðum með fjölbreyttum viðburðum fyrir alla fjölskylduna.
-
Vaka - VökufélagiðVökufélagið stuðlar að virku samtali og samstarfi milli einstaklinga, félaga og stofnana á sviði þjóðlista á Íslandi, þ.e. tónlistar, handverks, kveðskapar, flutnings o.s.frv.