Útgáfuhóf - Kuldavélin
Salka, Hverfisgata 89, 101 Reykjavík Kort
lau 17. okt 2026 14:00
Bústaðu viðburðinn!Verið hjartanlega velkomin að fagna útgáfu Kuldavélarinnar eftir Sváfni Sigurðarson í bókabúð Sölku laugardaginn 17. október kl. 14! Boðið verður upp á léttar veitingar, höfundur áritar og les upp úr bókinni sem verður að sjálfsögðu á útgáfutilboði. Öll velkomin!
Um Kuldavélina:
Matti er kominn aftur til Bjarkareyjar og hlakkar til að njóta bæjarhátíðarinnar með Hönnu Stínu, vinkonu sinni. Hann er þó varla stiginn á land þegar furðulegir atburðir eiga sér stað og fyrr en varir dragast vinirnir inn í æsispennandi kapphlaup við tímann þar sem meðal annars dularfullur íssali, kuldaköst á miðju sumri og gömul leyndarmál koma við sögu. Með hjálp vitavarðarins Hagbarðar, uppfinningakonunnar Katarínu Kristrósar, hinnar óborganlegu ömmu Lenu og hundsins Hrings þurfa Matti og Hanna Stína að treysta á hugrekki, útsjónarsemi og hvort annað til að bjarga Bjarkarey og íbúum hennar.
Kuldavélin er sjálfstætt framhald Brandarabílsins – spennandi, hlý og bráðfyndin ævintýrasaga um hugrekki, vináttu og fyrirgefningu. Hún minnir okkur á að stærstu hetjurnar eru ekki þær sem hræðast ekkert, heldur þær sem þora þrátt fyrir óttann.