Útgáfuhóf - Heiðríkja
Mengi, Óðinsgata 2, 101 Reykjavík Kort
mið 21. okt 2026 19:30
Bústaðu viðburðinn!Í tilefni af útgáfu ljóðabókarinnar Heiðríkju eftir Miriam Petru Ómarsdóttur Awad verður boðið til útgáfuhófs í Mengi, Óðinsgötu 2, 21. október kl. 19:30.
Heiðríkja er fyrsta ljóðabók höfundar en titill bókarinnar er vísun í heiðbláan íslenskan himinn og léttleikann sem fylgir því að verða ástfanginn.
Á útgáfuhófinu mun höfundur lesa upp úr bókinni auk þess sem boðið verður upp á léttar veitingar og hægt verður að kaupa bókina.
Viðburðurinn er styrktur af Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og er haldinn í samvinnu við Ós Pressuna.
Verið hjartanlega velkomin!