Útgáfuhóf Guðfinnu: Örlög kringum sveima. Sagnaþættir
Forlagið útgáfa, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Kort
þri 17. nóv 2026 16:30
Bústaðu viðburðinn!Fögnum útgáfu bókarinnar Örlög kringum sveima með Guðfinnu Ragnarsdóttur. Bók sem fjallar um mannlífið í landinu okkar í aldanna rás, um fólk og líf þess, ástir og átök, vonir og vonbrigði, velgengni og mótlæti, gleði og sorg. Gott er að muna að allir eiga sér sögu og í sögum þeirra sem á undan okkur fóru leynist einnig brot af okkar eigin.
Guðfinna Ragnarsdóttir er jarðfræðingur frá Stokkhólmsháskóla og blaðamaður frá Journalisthögskolan í Stokkhólmi. Hún kenndi við Menntaskólann í Reykjavík í nær þrjá áratugi og var ritstjóri Fréttabréfs Ættfræðifélagsins í aldarfjórðung. Hún hefur áður sent frá sér bækurnar Sagnaþætti Guðfinnu, þar sem hún lýsir lífi alþýðufólks víða um land, og minningabókina Á vori lífsins.