Útgáfuhóf bókarinnar Þuríður formaður eftir Margaret Willson
Forlagið útgáfa, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Kort
fim 8. okt 2026 16:30
Bústaðu viðburðinn!Þuríður formaður (1777–1863) var einstök kona á sínum tíma. Hún fór ung til sjós og var lengi aflasæll skipstjóri. Hún sótti rétt sinn og annarra fyrir dómstólum og átti stóran þátt í að upplýsa hið alræmda Kambsrán. En þrátt fyrir óvenjulegt hugrekki, ósérhlífni og óbilandi seiglu slapp hún ekki undan hörðum veruleika nítjándu aldar. Ævilok hennar sem ómagi voru fjarri þeirri virðingu sem hún hafði unnið sér til. Áhrifamikil frásögn, skrifuð á litríku máli, um sannkallaðan kvenskörung sem lét hvorki hefðir né valdsmenn setja sér skorður.
„Vönduð rannsókn og einstaklega vel skrifuð bók sem veitir heillandi innsýn í íslenskt samfélag 19. aldar. Um leið dregur hún upp ógleymanlega mynd af Þuríði formanni – hugrakkri, sjálfstæðri og þrautseigri konu sem er verðug fyrirmynd.“ — Eliza Reid, höfundur Sprakka og fyrrverandi forsetafrú.
„Margaret Willson sameinar sögulegar heimildir og sterka frásagnarlist í áhrifamikilli sögu um Þuríði formann, eina merkustu sjókonu Íslands. Loks fær þessi óvenjulega kona þá viðurkenningu sem hún á skilið.“ — Gísli Pálsson, prófessor emeritus í mannfræði við Háskóla Íslands.
Margaret Willson er bandarískur mannfræðingur og lektor við Washington-háskóla í Seattle. Hún lauk doktorsprófi í mannfræði frá London School of Economics og hefur stundað rannsóknir víða um heim, meðal annars í Brasilíu, Papúa Nýju-Gíneu, Mongólíu, á meginlandi Evrópu og á Íslandi.
Jónína Margrét Guðnadóttir, cand. mag, þýddi verkið á íslensku.