Úrræðaleysi // Monika Jóhanna Karls

Úrræðaleysi // Monika Jóhanna Karls

Myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík Kort

fim 1. okt 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

BA3 einkasýning í Kubbnum Opnun 1. október 17:00 – 19:00 Olíumálverk Moniku Jóhönnu Karls eru endurgerð á veruleika sem finnst ekki lengur. Tilraun til þess að týna saman minningar af öllum herbergjunum og hlutunum og gæludýrunum og baksvip fólks. Málverkin eru nánast í raunstærð og Monika vinnur meðvitað með sjónarhornið og hvernig rými getur upplifast ofanfrá eða á skjön, tekið á sig nýjar myndir í huganum eða rofnað. Köttur sem flæðir saman við borð og verður bolti eða manneskja sem er samofin sófanum. Málverkin eru unnin hratt og af innsæi, án eiginlegs skipulags finna þau sinn strúktúr. „.Úrræðaleysi þeirra er glíma… í sínum huga snúist málið ekki um…heldur frekar það úrræðaleysi sem húseigandinn hefur þurft að glíma við vegna vanda síns…að málið hafi vegna úrræðaleysis sest á herðar lögreglunnar …lýsir yfir miklum áhyggjum yfir því að ekki séu til nein sértæk úrræði handa húseigandanum.’’ Tekið úr fréttagrein um viðkomandi hús

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.