Á þessum tónleikum koma fram Spouses, Brenninetla og ÞESAL.
Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.
Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar.
Almennt miðaverð er aðeins 2000 kr. og sérstakt stuðningsverð vildarvina er 5000 kr. Einnig er hægt að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.
**
Spouses er tónlistarverkefni kanadíska tónlistarmannsins Joel Durksen en hann hefur verið búsettur á Íslandi frá 2023. Hann sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu, I Could Be Your Dog, í maí 2026 en platan var tekin upp í gömlu hesthúsi sem Joel Durksen hefur umbreytt í hljóðver. Áður en Joel flutti til Íslands hafði hann starfað með tónlistarfólki svo sem með Brad Stank, Dent May og Two Blinks I Love You. Undanfarin ár hefur hann einbeitt sér að eigin lagasmíðum.
Upprásin | Spouses, Brenninetla, ÞESAL
Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
þri 17. nóv 2026 19:00
ISK 5000.00
Kaupa miða / Skrá sig
ISK 5000.00
Kaupa miða / Skrá sig