Upplestur og kynning Sigurður Skúlason
Hugarhlýja, Austurmörk 7, 810 Hveragerði Kort
sun 6. des 2026 15:00
Bústaðu viðburðinn!Árið 2026 kom út bók Sigurðar í leit að því sem er, en þar segir á bókarkápu:
„Hvað tökum við í arf frá foreldrum okkar og hverju miðlum við áfram til barna okkar?
Hvernig komumst við að því hvað er hvurs og hvurs er hvað? En ekki síst: hvar finnum við frið mitt í áreiti og óreiðu nútímans?
Sigurður Skúlason hefur varið drjúgum hluta langrar ævi í þá leit og leið hans legið um ýmis svið samfélagsins – leikhús og listsköpun, pólitík, sálarfræði og alls kyns meðferðir, hugleiðslu og andlegt líf.
Hér á bók ígrundar hann þessa leit og hvar hún endar.“
Við tökum vel á móti Sigurði í Hugarhlýju sunnudaginn 6 desember, fáum okkur heitt súkkulaði og piparkökur og eigum notalega stund.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir, takmarkaður sætafjöldi