Ungfrúin góða og húsið
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Kort
sun. 01.11.2026 17:00
Innan veggja hins virðulega húss leynast ást, lygar og ótti við hneyksli. Þegar Rannveig snýr heim ólétt reynir fjölskyldan að verja mannorð sitt sem hefur afdrifaríkar afleiðingar. Guðný Halldórsdóttir færir sögu Halldórs Laxness á hvíta tjaldið af næmi og krafti og dregur upp áhrifamikla mynd af samfélagi þar sem ásýndin skiptir öllu máli.
Ungfrúin góða og húsið er sterk og grípandi fjölskyldusaga um fórnir, þöggun og frelsisþrá.
Myndin hlaut Edduverðlaunin fyrir bestu kvikmyndina, leikstjórn, tónlist, leikkonu í aðalhlutverki og förðun.
*sérstakur viðburður
Sýnd í Bíótekinu, sunnudaginn 1. nóvember kl 17:00!
Flytjendur
-
BíótekiðKvikmyndasafn Íslands hefur stofnað Bíótekið og mun vera með reglulegar kvikmyndasýningar í samstarfi við Bíó Paradís. Nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði er að finna hér undir ,,events" og á Kvikmyndasafn.is og bioparadis.is.
-
Kvikmyndasafn Íslands
Kvikmyndasafn Íslands safnar, varðveitir og miðlar íslenskum kvikmyndum.