Undir sömu stjörnu
sun. 18.10.2026 16:00
Undir sömu stjörnu
Opnunarviðburður Óperunnar í Hofi.
Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um "Ástarstjörnu yfir Hraundranga" samdi Richard Wagner óperuaríu til “Kvöldstjörnunnar" sunnar í Evrópu. Var það mögulega sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir beggja?
Í þessari aðgengilegu og upplyftandi söngdagskrá er saga Óperunnar rakin, frá endurreisn til okkar daga, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum.
Einvala lið listamanna fléttar saman fróðleik og skemmtun og flytur okkur nokkrar fegurstu perlur óperusögunnar.
Fram koma Kristín Einarsdóttir Mäntylä, sópran, Hildigunnur Einarsdóttir, messó-sópran, Gunnar Björn Jónsson, tenór, Kristján Ingi Jóhannesson, barítón, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Akureyrarkirkju, Kammerkór Norðurlands, og stórleikararnir Örn Árnason og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Handrit og leikstjórn er í höndum Ólafs Egils Egilssonar og tónlistarstjóri Óperunnar, Richard Schwennicke, stjórnar hljómsveit.
Opnunarviðburðurinn verður 18. október í Hofi í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Viðburðurinn verður einnig fluttur á Eskifirði, í Skálholti, í Reykjanesbæ og síðar í Þjóðleikhúsinu.
Flytjendur
-
Kristín Einarsdóttir Mäntylä
Sópransöngkona
-
Hildigunnur EinarsdóttirEinsöngvari
-
SinfoniaNordIcelandic symphony orchestra
-
Kór AkureyrarkirkjuKór Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur.
-
Kammerkór NorðurlandsKammerkór Norðurlands er sjálfstætt starfandi atvinnukór sem er skipaður söng- og tónlistarmenntuðu fólki af Norðurlandi. Stjórnandi kórsins er Guðmundur Óli Gunnarsson.
-
Örn ÁrnasonIcelandic musician performing songs based on the poetry of Tómas Guðmundsson.