TRAINSPOTTING << Spólað til baka!

TRAINSPOTTING << Spólað til baka!

þri 3. nóv 2026 20:00

Trainspotting (Danny Boyle, Bretland, 1996)
Veldu lífið. Veldu vinnu. Veldu framtíðina.

Sagan fylgir Mark Renton og vinahópi hans í gegnum undirheima Edinborgar þar sem þeir reyna að lifa af, komast á beinu brautina og flýja sinn eigin eyðileggingarmátt. Trainspotting er svört, fyndin og óhefluð kvikmynd um ungt fólk á jaðrinum, drifin áfram af ógleymanlegri 90s tónlist sem smellpassar við.
Þrjátíu árum síðar hittir hún enn í mark.

Myndin hefst kl. 20:00 (3. nóvember). Á ensku með enskum texta, bönnuð innan 18 ára.
Eins og alltaf hjá Spólað >> fólk fætt árið 2000 eða síðar: frítt inn!

Spólað til baka er stutt af menningarsjóðum Ísafjarðarbæjar og Orkubús Vestfjarða.
 
Sjáumst í bíó!
https://spoladtilbaka.is/
 

Flytjendur