Tónleikar: Vísur Svantes

Tónleikar: Vísur Svantes

Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort

mið 14. okt 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Í fyrsta sinn á íslensku verður hið rómaða verk danska meistarans Benny Andersen, Vísur Svantes, flutt í Norræna húsinu.

Vísur Svantes er saga í söngvum þar sem tónlist og texti fléttast saman á einstakan hátt. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson hefur íslenskað verkið og flytur það ásamt Gunnari Gunnarssyni á píanó og Birgi Stein Theódórssyni á kontrabassa.

Verkið kom fyrst út í Danmörku fyrir meira en hálfri öld, bæði í bókarformi og á metsöluplötu þar sem höfundurinn Benny Andersen kom fram ásamt söngvaranum Povl Dissing. Vísur Svantes hefur síðan öðlast sérstakan sess í danskri menningu og er í dag talið eitt af lykilverkunum í danskri tónlistarsögu.

Nú gefst íslenskum áhorfendum tækifæri til að kynnast þessu sígilda verki á íslensku; í lifandi flutningi þar sem orð, tónlist og frásögn mætast.

Aðgangur er ókeypis. Elissu salur hefur gott aðgengi, lágur þröskuldur er inn í salinn. Nánari upplýsingar um aðgengi má finna hér á heimasíðu Norræna hússins: Upplýsingar um aðgengi.