Þriðjudagsgöngur Gönguklúbbs Seyðisfjarðar
Herðubíó, Austurvegur 4, 710 Seyðisfjörður Kort
þri 27. okt 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!Fimmta ganga klúbbsins verður í Fjarðasel. Við hittumst við útikennslustofuna kl. 17 og göngum að virkjuninni. Mælum með að hafa höfuðljós með þar sem það gæti verið farið að dimma aðeins á bakaleiðinni.
//
22. sept.
Fjórða ganga klúbbsins verður aðeins á fótinn en útsýnið er því betra. Gengið verður að „tollvörðunni“ sem heitir kannski ekki tollvarðan en sökum þess að tollverðir bæjarins hafa flestir ef ekki allir tekið ástfóstri við hana eins og sjá má á gestabókinni er þetta sannkallað réttnefni. VIð hvetjum alla tollara til að mæta:)
VIð hittumst við útikennslustofuna kl. 17 og göngum upp. Þessi ganga er aðeins krefjandi og smá brölt en hrikalega skemmtileg.
Við mælum með því að fólk skelli höfuðljósi í bakpokann til öryggis þar sem það gæti verið farið að dimma aðeins á leiðinni til baka.
//
15. sept.
Þriðja þriðjudagsganga Gönguklúbbsins verður aðeins í styttra lagi en útsýnið þeim mun meira. Hún verður á Baug Bjólfs og um snjóflóðavarnargarðana. Við skulum gera ráð fyrir að hittast á nýja bílastæðinu en þaðan er 1 km ganga að Baugnum.
Við hvetjum fólk til að sameinast í bíla.. Svo göngum við saman um svæðið og gefum okkur tíma til að njótum útsýnisins.
Skv. nýjustu skýjahuluspánni verður fínasta skyggni: https://www.vedur.is/vedur/spar/skyjahula/
//
8. sept.
Önnur þriðjudagsganga Gönguklúbbsins hefst á bílastæðinu fyrir neðan Lönguhlíð í Vestdal. Þaðan göngum við upp í Vestdal og stefnum að því að prófa nýjar brýr brúarbræðra. Gengið verður fram og til baka sömu leið.
Allir velkomnir: þátttaka fyrir félaga Gönguklúbbsins er ókeypis en gjald fyrir aðra er 500 kr. á göngu sem leggjast inn á bankareikning klúbbsins. 0176 26 061136 Kt. 430602-5270 (Best er samt að skrá sig bara í klúbbinn:) Tekið er á móti skráningum á netfangið gonguklubburseydisfjardar@gmail.com
Þriðjudagsgöngurnar verða í september og október og jafnvel út veturinn ef vel gengur.
Ingvi Örn leiðir göngurnar.