Þegar unglingsárin eru hafin – hvað þurfum við að vita? (fyrir foreldra nemenda í 8. bekk)
Hlégarður, 2 Háholt, 270 Mosfellsbær Kort
fim 15. okt 2026 19:30
Bústaðu viðburðinn!Fimmtudaginn 15. október frá kl. 19:30 – 21:00 verða Helgi Þór Harðarson skólasálfræðingur og Ágúst Jakobsson leiðtogi málefna grunnskóla með fyrirlestur fyrir foreldra nemenda í 8. bekk í grunnskólum Mosfellsbæjar.
Það getur verið bæði skemmtilegt og krefjandi að eiga ungling. Það er mikið að gerast í innra og ytra lífi þessara ungu einstaklinga og þau krefjast aukins sjálfstæðis en þurfa um leið á aðhaldi og afskiptasemi að halda.
- Hvað er að gerast í hausnum á unglingnum mínum?
- Hvernig get ég stutt við námið og skólagönguna?
- Hvað er eiginlega með þennan skjátíma?
- Og hvernig get ég fengið unglinginn til að taka til í herberginu sínu?
Á fyrirlestrinum verður meðal annars leitað svara við þessum spurningum. Fjallað um þær þroskabreytingar sem unglingsárin hafa í för með sér og hvað foreldrar þessa aldurshóps þurfa að hafa í huga varðandi þau mál. Þá er fjallað um ýmis hagnýt atriði varðandi skólagöngu á unglingastigi og þá jafnvægislist að setja mörk og fylgja reglum en á sama tíma að sýna góðvild og væntumþykju.
Markmiðið er að foreldrar fari heim með hagnýt verkfæri til að skilja betur hegðun og líðan barna sinna og takast af meira öryggi á við krefjandi aðstæður í uppeldinu.
***
Foreldraskóli Mosfellsbæjar er verkefni sem hleypt er af stokkunum haustið 2026 og er hluti af Samskiptasáttmála Mosfellsbæjar. Foreldraskólinn felur í sér árlega fræðslu fyrir foreldra sem miðast við aldur barna þeirra. Mælst er til þess að allir foreldrar viðkomandi aldurshóps sæki þá fræðslu sem boðið er upp á hverju sinni.