The Streets - ásamt Úlfur Úlfur
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
sun. 08.11.2026 20:00
The Streets í Eldborg, Hörpu!
Úlfur Úlfur hita upp!
The Streets flytja A Grand Don´t Come for Free í heild sinni, í fyrsta sinn á sviði þann 8. nóvember og að sjálfsögðu er það sviðið í Eldborg sem varð fyrir valinu! Í seinni hluta tónleikanna má heyra dáðustu smellina frá ferlinum.
Þeirra einstaka blanda af bresku hip-hop-i, bílskúrs- og rafrænni tónlist mun án efa njóta sín í botn á sviðinu í Eldborg. Tónleikarnir eru sérstakir IA26 tónleikar og slá því botninn í hátíðina í ár.
Úlfur Úlfur eru þekktir fyrir sína einstöku sviðsframkomu og munu án efa trylla salinn áður en The Streets mætir á sviðið og þá getur allt gerst!
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri, að sjá The Streets og Úlf Úlf í Eldborg!
Sjö verðsvæði eru í boði og kosta miðarnir frá 11.990 kr.
VERÐSVÆÐIN:
Gull svæði: 29.990 (Gulgrænt á mynd)
Úrvalssvæði: 27.990 (Fjólublátt á mynd)
A svæði: 25.990 (Rautt á mynd)
B svæði: 22.990 (Blátt á mynd)
C svæði: 17.990 (Grænt á mynd)
D svæði: 15.990 (Gult á mynd)
E svæði: 11.990 (Bleikt á mynd)
Mynd af sal hér
Umsjón: Iceland Airwaves
Um The Streets
The Streets sló fyrst í gegn árið 2002 með plötunni Original Pirate Material, sem tilnefnd var til Mercury-verðlaunanna. Platan er talin ein áhrifamesta breska plata síðari tíma. Áhrifa hennar gætir enn í bresku tónlistarsenunni. Í kjölfarið fylgdu fjórar tilnefningar til BRIT-verðlauna, meðal annars fyrir plötu ársins og besta söngvara. Lagið Dry Your Eyes, af plötunni A Grand Don’t Come For Free (2005), hlaut Ivor Novello-verðlaun fyrir besta lag bæði tónlistar- og textalega, og sama ár hlaut Skinner BRIT-verðlaunin.
Síðan þá hefur The Streets gefið út fjölda platna, þar á meðal The Hardest Way to Make an Easy Living (2006), Everything Is Borrowed (2008), Computer and Blues (2011) og mixtape-plötuna None Of Us Are Getting Out of This Alive (2020). Skinner hefur einnig unnið með fremstu nöfnum breskrar tónlistar. Nöfn eins og Kano og Fred again.. til Greentea Peng, Giggs og Chris Lorenzo, með smellinum Take Me As I Am.
Undanfarin ár hefur hann, í gegnum útgáfuna Mike Skinner LTD, unnið með nýrri kynslóð listamanna á borð við FLOHIO, Ghetts og Grim Sickers.
Nýjasta plata hans, The Darker The Shadow, The Brighter The Light (2023), markar endurkomu Skinners. Platan er heildstætt verk þar sem einkennandi lesnir textar mæta myndrænni frásögn. Platan tengist samnefndri kvikmynd sem hann leikstýrði sjálfur en þar fléttast saman myrkur stíll, elektrónísk tónlist og íhugul þemu um frægð, sjálfsmynd og tilveru.
Skinner er einstakur sviðslistamaður með mikla reynslu sem flytjandi. Hann er þekktur fyrir kraftmikla nærveru á sviði og hæfileikann til að grípa áhorfendur. Hann gerir það jafnt í troðfullum kjöllurum eða á stærstu hátíðarsviðum á borð við Glastonbury. Hann stýrir hann sviðinu með ómótstæðilegri nærveru og klassískri breskri kaldhæðni. Þegar The Streets tilkynnti endurkomutúr árið 2017 seldust miðar upp á innan við mínútu – skýr vitnisburður um áhrifin sem hann hefur haft á kynslóðir tónlistarfólks og áhorfenda.
A Grand Don’t Come For Free var gefin út árið 2004 og er enn ein mikilvægasta og áhrifamesta breska plata 21. aldarinnar. Hún fór beint á topp breska vinsældalistans, seldist í milljónum eintaka og skilaði tímamótalögum á borð við Dry Your Eyes, Fit But You Know It og Blinded By The Lights.
Platan festi Skinner í sessi sem eina af frumlegustu röddum Bretlands. Platan inniheldur einstaka blöndu af húmor, brostnum hjörtum og hráum tilfinningum hversdagslífsins, sett fram á einstakan ljóðrænan hátt.
Um Úlf Úlf
Úlfur Úlfur hefur verið meðal áhrifamestu hljómsveita á Íslands í meira en áratug. Frá því að vera rappdúó úr litlum bæ hafa þeir þróast yfir í einir af vinsælustu og ástsælustu tónlistarmönnum landsins. Frá árinu 2011 hafa þeir ferðast um landið þvert og endilangt og spilað hvar sem þörf hefur verið fyrir þungan takt, melankólíu og brostin hjörtu.
Lagalisti þeirra spannar vítt svið tónlistar sem hittir alltaf beint í mark. Tvíeykið hefur stöðugt þróast og breyst án þess að missa sjónar á kjarnanum. Með því að fara út fyrir hefðbundin mörk rappsins og blanda saman ólíkum áhrifum hafa þeir skapað einstakt og auðþekkjanlegt “sound”. Meðlimirnir þeir Helgi Sæmundur og Arnar Freyr, hafa verið vinir frá barnsaldri og samið tónlist saman frá unglingsárum sem einkennist einfaldlega alltaf af þeirra eigin sannfæringu.
Á nýjustu útgáfu sinni, Svarti Skuggi (2025), kanna þeir nýjar slóðir án þess að tapa því sem gerir Úlf Úlf að Úlfi Úlfi. Platan sækir innblástur í kántrítónlist og sameinar hljómandi gítara og kvikmyndalegt yfirbragð við þann hráa húmor, kraft og grípandi lagasmíðar sem hafa einkennt sveitina frá upphafi. Hún er enn eitt skrefið í stöðugri þróun þeirra og sýnir að eftir öll þessi ár eru þeir enn að finna nýjar leiðir til að koma á óvart.
Með árunum hafa þeir öðlast bæði reynslu og vigt. Þó þessir tveir partýstrákar séu orðnir miðaldra fjölskyldufeður er úlfurinn enn svangur.
Flytjendur
-
ÚLFUR ÚLFUR
Úlfur Úlfur (Wolf Wolf) has been among the most influential acts in Iceland for a decade now. A small town rap duo turned big city popstars, Úlfur Úlfur has been grinding since 2011 in a country known for its musicians, performing non-stop everywhere where there’s a need for 808s and heartbreaks. Their catalog spans the whole spectrum but most of all it goes hard. The band has been ever evolving while polishing its core – going beyond the boundaries of traditional rap music and mixing different ideologies together to create something unique, distinctive and cool. Its members, Helgi Sæmundur and Arnar Freyr, childhood friends that have been making music together since their early teen years, do what comes to them naturally and it shows.
In October 2023 the band released its 4th album, Hamfarapopp. On it, the band is on familiar ground but the overall sound is definitely a bit brighter and more pop-esque. It’s lovely. Through the years the band has gained experience and muscles and even though these two party dudes have evolved to middle aged dads the wolf is still hungry. -
Iceland AirwavesTónlistarhátíð sem fer fram í Reykjavík.
-
SENASena er upplifunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæða viðburðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
-
Sena Live
Sena er upplifunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæða viðburðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
-
Mike SkinnerRA: Resident Advisor