Tha Alkaholiks

Tha Alkaholiks

Iðnó, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík Kort

mið. 07.10.2026 20:00

Tha Alkaholiks í Iðnó 7. okt - Takmarkað magn miða!

Tha Alkaholiks koma fram í Iðnó þann 7. október - 20 ára aldurstakmark nema í fylgd forráðamanna.

Hin goðsagnakennda hip-hop sveit Tha Alkaholiks heldur tónleika á Íslandi 7. október næstkomandi. Tónleikarnir fara fram í Iðnó og aðeins verða 300 miðar í boði.

Tha Alkaholiks, einnig þekktir sem Tha Liks samanstendur af J-Ro, Tash og DJ/pródúsernum E-Swift. Tríóið kom fram á sjónarsviðið snemma á tíunda áratugnum í Los Angeles og skapaði sér fljótt sérstöðu innan hip-hop senunnar með hráum takti, húmor, sterkum persónuleikum og einstökum hæfileika til að breyta tónleikum í partý.

Sveitin hefur frá upphafi verið þekkt fyrir mikla sviðsorku og óheflaða partystemningu. J-Ro og Tash skiptast á línum yfir takta E-Swift og mörkin á milli sviðs og salar eiga það til að hverfa hratt. Þetta eru ekki tónleikar þar sem fólk stendur aftast með krosslagðar hendur.

Þann 7. október verður þessi stemning flutt inn í Iðnó — í sal þar sem aðeins 300 manns komast að. Það þýðir návígi við eina líflegustu hip-hop sveit sinnar kynslóðar og kvöld sem verður erfitt að endurtaka.

The Alkaholiks

Frumraun The Alkoholiks, 21 & Over, kom út árið 1993 og hefur með tímanum öðlast klassískan sess innan West Coast og underground hip-hop. Þar má meðal annars finna lögin „Make Room“, „Likwit“ og „Only When I'm Drunk“.

Tveimur árum síðar kom úr platan Coast II Coast, með lögum á borð við „Daaam!“ og „The Next Level“, og árið 1997 gaf sveitin út plötuna Likwidation. Þar héldu þeir áfram að þróa sinn einkennandi hljóm og fengu meðal annars Ol' Dirty Bastard úr Wu-Tang Clan með sér í lagið „Hip Hop Drunkies“.

Síðar fylgdu plöturnar X.O. Experience árið 2001 og Firewater árið 2006. Árið 2025 sneru The Alkaholiks aftur með Daaam!, þar sem nýjar útgáfur af nokkrum af þekktustu lögum sveitarinnar mæta nýju efni.

Arfleifð Tha Alkaholiks snýst ekki síður um tónleika sveitarinnar en plöturnar og því má búast við mikilli aðsókn á tónleikana í Iðnó 7. október.