Sorgarganga og tendrun ljósa á Sorgartrénu í Hellisgerði

Sorgarganga og tendrun ljósa á Sorgartrénu í Hellisgerði

Hellisgerði Hafnarfirði, Skúlaskeið, 220 Hafnarfjörður Kort

sun 29. nóv 2026 17:30

Bústaðu viðburðinn!

Viðburðurinn hefst í Lífsgæðasetrinu St. Jó, Hafnarfirði, kl. 17:30 með sorgargöngu, þar sem við förum með nokkur orð um jólin og sorgina. Síðan verður gengið saman í hlýju ljósi í átt að Hellisgerði þar sem kveikt verður á ljósum á Sorgartrénu við fallega athöfn en Katla Njálsdóttir hefur dagskrána í Hellisgerði kl. 18:00

Hugmyndin með Sorgartrénu er að öll þau sem hafa misst ástvin geti sest undir tréð og minnst þeirra sem fallin eru frá, á þessum ljúfsára tíma sem jólin eru fyrir syrgjendur. Sorgartrénu er einnig ætlað að vekja athygli á stöðu syrgjenda sem eiga um sárt að binda á þessum tíma árs. Öll eru því velkomin, hvort sem þau vilji sýna stuðning eða vilji minnast