Sonju - Tónheilunar hugleiðsla

Sonju - Tónheilunar hugleiðsla

Hugarhlýja, Austurmörk 7, 810 Hveragerði Kort

mið 2. des 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Kæru öll �

Næsta tónheilunarhugleiðsla er miðvikudagskvöldið 2 desember kl:20:00

Það verður líka extra tími í desember mánuði miðvikudag þann16

kl: 20:00

Um að gera að tryggja sér pláss strax þá gleymist það ekki í jólaösinni en verður gull að eiga fast pláss á þessum tíma!

Skráning: sonja@sonjaarnars.com

Verð: 3,500 - greiðist við skráningu.

Tónheilun er eitt af mínum bestu leiðum til þess að vinna með taugakerfið mitt, líkamlega verki og ná dýpri slökun.

Rannsóknir á sértækum einkennum

• Kvíði og streita. Samanburðarrannsóknir sýna að tónheilun dregur úr bæði líkamlegum og andlegum einkennum kvíða, svo sem vöðvaspennu og hraðri öndun. Hljóðmeðferð virkar oft vel fyrir fólk sem á erfitt með hefðbundna hugleiðslu í þögn, því hljóðin gefa huganum fastan punkt til að einbeita sér að.

• Svefnleysi og þreyta. Rannsóknir á hljóðbylgjum og róandi tíðnum fyrir svefn sýna að þær geta stytt tímann sem tekur að sofna og aukið djúpsvefn. Þetta skýrist af því að sefkerfið tekur yfir og líkaminn hættir að framleiða streituhormón á kvöldin.

• Kulnun og taugakerfisþreyta. Þegar taugakerfið er undir langvarandi álagi festist það oft í „berjast eða flýja“ viðbragði (sympatíska taugakerfinu). Hljóðbað og reglubundin tónheilun geta hjálpað taugakerfinu að „endurstilla“ sig með því að þjálfa sefkerfið í að virkjast á ný.

• Tónskálar og gong. Þessi hljóðfæri framkalla ríka yfirtóna og lágar titringstíðnir sem hægja á öndun og hjartslætti.

Í rannsóknum hefur komið fram að titringurinn og hljóðin hjálpa heilanum að skipta úr árvekni (beta-bylgjum) yfir í djúpa slökun (alfa- og þeta-bylgjur) á skömmum tíma.

Sjávartromma, chime og fl. hljóð á þessum viðburði.

Hlýja �

Sonja

Flytjendur