Sögustund og 100 ára afmæli Bangsímon!
Bókasafn Reykjanesbæjar, Stapasafn, Dalsbraut 11, 260 Njarðvík Kort
mið 14. okt 2026 16:30
Bústaðu viðburðinn!Bangsímon á 100 ára afmæli og því ætlum við að halda upp á það með alvöru bangsa-sögustund! 💛
Halla Karen les upp úr sögunni um Bangsímon og félaga hans og við eigum saman dásamlega stund í heimi þeirra í Hundraðekruskógi.
Þar sem alþjóðlegi bangsadagurinn er líka handan við hornið, 27. október, hvetjum við öll börn til að taka uppáhaldsbangsann sinn með í afmælisveisluna. 🧸
Þetta verður alvöru afmælisveisla, með afmælisköku, djúsi og kaffi fyrir gesti.
Viðburðurinn verður miðvikudaginn 14. október kl. 16:30 í Stapasafni.
Öll börn og bangsar velkomin, að kostnaðarlausu!💛🧸