Verið velkomin á bókasafnið að hlusta á skemmtilega sögu um litla stelpu sem býr í RISALANDI! Lesin verður sagan Ég bý í RISALANDI eftir Birnu Daníelsdóttur.
Sagan fjallar um það að vera lítill í heimi fullorðna fólksins, um allt sem reynist smáfólki erfitt en líka allt það stórkostlega sem kemur í ljós þegar horft er á heiminn frá sjónarhóli barnsins.
Eftir upplesturinn er boðið upp á skemmtilegt föndur.
Sögustundirnar í Borgarbókasafninu Spönginni fara fram þriðja þriðjudag hvers mánaðar kl. 16:30-17:30. Þær fara fram í Sjónarhóli, sýningarsal bókasafnsins.
Öll velkomin.
Nánari upplýsingar veitir:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6250
Sögustund fyrir fjölskylduna
Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort
þri. 20.10.2026 16:30