Verið velkomin á bókasafnið að hlusta á hugljúfa sögu um vináttu bjarnar og bifurs. Lesin verður sagan Draugar banka ekki á dyr eftir Eulália Canal Rocio Bonilla í þýðingu Svanlaugar Pálsdóttur.
Vinirnir Bjössi og Bifur leika sér saman alla daga en þegar Bifur vill ekki leyfa Andarsteggi að vera með þá flækjast málin.
Eftir upplesturinn litum við fallegar myndir upp úr sögunni.
Sögustundirnar í Borgarbókasafninu Spönginni fara fram þriðja þriðjudag hvers mánaðar. Þær eru í Sjónarhóli, sýningarsal bókasafnsins
Öll velkomin.
Nánari upplýsingar veitir:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6250
Sögustund fyrir fjölskylduna
Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort
þri. 15.09.2026 16:30
Flytjendur
-
BorgarbókasafniðBorgarbókasafn Reykjavíkur er almenningsbókasafn á sjö stöðum - opið rými allra. Hvert og eitt safn h