Sögurnar í leirnum
Náttúrufræðistofa Kópavogs, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort
lau 30. jan 2027 13:00
Bústaðu viðburðinn!Fjölskyldusmiðja í Náttúrusafni Kópavogs.
Hvað leynist í leirnum? Hvaða sögur segir hann okkur ef við leggjum við hlustir?
Í þessari fjölskyldusmiðju kynnumst við leirnum sem hluta af jörðinni og skoðum hvaða verur, líkamar og sögur taka að birtast þegar við sitjum með honum. Við leggjum af stað í rannsóknarleiðangur um Náttúrusafnið, skoðum fjölbreytileika dýra, forma og búsvæða og veltum fyrir okkur manneskjunni sem einni dýrategund meðal annarra.
Saman sköpum við nýjar, ímyndaðar verur úr leir og byggjum upp heima í kringum þær.
Hvaðan koma verurnar? Hvar vilja þær búa? Hvernig hreyfa þær sig og hvaða sögur hafa þær að segja?
Smiðjan er rými fyrir börn og fullorðna til að rannsaka, snerta, ímynda sér og skapa saman.
Leiðbeinendur: Helga Arnalds og Nicola Visser
Smiðjan fer fram á íslensku og ensku.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!
Viðburðurinn er liður í Fjölskyldustundum á laugardögum og er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.