Sögur um hluti - Sögustund í tali og tónum með Ingibjörgu Fríðu og Halldóri Eldjárn

Sögur um hluti - Sögustund í tali og tónum með Ingibjörgu Fríðu og Halldóri Eldjárn

lau 17. okt 2026 13:00

Ingibjörg Fríða Helgadóttir hefur getið sér gott orð fyrir útvarpsþættina Þjóðsögukistuna og Í ljósi krakkasögunnar á RÚV. Í þessari sögustund leiðir hún okkur inn í heim vöruhönnunar frá glænýju sjónarhorni.

Vissir þú að það voru börn sem fundu upp á eyrnaskjólum og trampólíni? Hvaða fleiri óvæntar sögur tengjast hlutum í hversdeginum okkar? Hvernig var nú aftur þjóðsagan um pottinn sem sauð endalausan graut? Við skoðum hönnun út frá ævintýrum, þjóðsögum og sönnum sögum.

Með Ingibjörgu Fríðu á sviðinu er Halldór Eldjárn sem skapar seiðmagnaða hljóðmynd og laðar fram hljóð og tóna úr hversdagslegum hlutum.

Viðburðurinn er unnin sérstaklega fyrir Barnamenningarhátíð Garðabæjar 2026 og liður í hátíðardagskrá laugardagsins 17. október. Í Smiðju Hönnunarsafnsins má einnig kíkja á sýningu með verkum eftir alla 4. bekkinga í Garðabæ sem hafa komið á Hönnunarsafnið og unnið sínar eigin hugmyndir á sviði vöruhönnunar.

Heildardagskrá lokdags Barnamenningarhátíðar má sjá hér: https://fb.me/e/4Kp4bnlLx