Sko mig! | Sjálfsmyndasmiðja

Sko mig! | Sjálfsmyndasmiðja

Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort

þri 13. okt 2026 16:30

Bústaðu viðburðinn!

Skapandi smiðja fyrir 10-12 ára
Af hverju verður fullorðið fólk oft beinna í baki og setur upp sparibrosið þegar það er tekin mynd af því? Gerir þú eitthvað svipað, eða seturðu kannski upp æðislega grettu við sama tilefni? Hvaða sögu segja myndirnar sem birtast af okkur og öðru fólki á netinu og gefa þær rétta mynd af okkar lífi?
Í smiðjunni kynnumst við fjölbreyttum leiðum til að tjá eigin sjálfsmynd og fanga persónu annarra með því að skoða verk listamanna sem notast við ljósmyndum í sínum verkum. Við lærum að taka skapandi ljósmyndir sem ganga út á meira en að líta vel út eða ganga í augun á öðrum.
Skráning er hafin hér að ofan.
Leiðbeinandi er Bára Bjarnadóttir, sérfræðingur í barnastarfi á Borgarbókasafninu og myndlistarmaður. Bára hefur víðtæka reynslu af starfi með börnum og ungmennum gegnum listasmiðjur og frístundastarf, þar sem áhersla fellur oft á tilraunamennsku, einlægt samtal og sköpunargleði.
Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni Mjúkt net – samfélagslegt miðlalæsi sem hlaut styrk úr Bókasafnasjóði. Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og fjölskyldur dagana 11.-18. október sem upptakt að miðlalæsisviku í öllum átta söfnunum.
Nánari upplýsingar veitir:
Bára Bjarnadóttir, sérfræðingur
bara.bjarnadottir@reykjavik.is | 411-6100