SKÁL! POP UP SERIES: OMEGN & VENNER
Skál, Hlemmur Mathöll, 105 Reykjavík Kort
mán 5. okt 2026 18:00
Bústaðu viðburðinn!Í næsta SKÁL! pop-up fáum við góða vini okkar frá Omegn & Venner í Kaupmannahöfn í heimsókn á Njálsgötuna í tvö kvöld.
Omegn & Venner er veitingastaður og verslun í Torvehallerne í Kaupmannahöfn þar sem áherslan er hágæða hráefni og fólkið á bak við það. Þau vinna náið með litlum framleiðendum sem rækta og framleiða af alúð, með það að leiðarljósi að elda einfaldan og bragðgóðan mat þar sem hráefnið fær að njóta sín.
Til Reykjavíkur koma meðeigendur staðarins, Denny og Sarah, ásamt Maria Lesi, yfirkokki Omegn & Venner.
Á meðan þau dvelja á Íslandi mun teymið kynnast íslensku hráefni og framleiðendum og leiða saman eldhúsin tvö í 5 rétta matseðli þar sem íslenskt hráefni, landslagið og nálgun Omegn & Venner verða í aðalhlutverki.
Mánudagur 5. október
Þriðjudagur 6. október
Tvær setur hvort kvöld:
18:00 / 18:30
20:30 / 21:00
5 rétta matseðill · 14.900 kr.
Takmarkað sætaframboð.
Bóka hér: https://www.dineout.is/is/skal/event/skalxomegn