Skaginn á filmu - úr hirslum Kvikmyndasafnsins

Skaginn á filmu - úr hirslum Kvikmyndasafnsins

Tónberg Akranesi, Dalbraut 1, 300 Akranes Kort

þri 27. okt 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Kvikmyndasafn Íslands býður til sérstakrar kvikmyndasýningar í Tónbergi á Vökudögum þar sem dregnar verða fram sjaldséðar perlur úr safnkosti þess. Á dagskrá eru gamlar kvikmyndir frá Akranesi og nágrenni sem margar hafa ekki verið sýndar opinberlega í áratugi.

Gestir fá einstakt tækifæri til að stíga aftur í tímann og kynnast íþróttaafrekum, sjómennsku og daglegu lífi í ört vaxandi sjávarþorpi á 20. öld þar sem knattspyrnan var aldrei langt undan. Myndirnar eru ómetanlegar heimildir um sögu og samfélag Akraness og vekja fortíðina til lífs á hvíta tjaldinu.

Sýningin fer fram kl. 17 þann 27. október í Tónbergi á Akranesi.