Shorts II Íslenskar nemandamyndir og Spænsk verðlauna stuttmynd.
Ísafjarðarbíó, Norðurvegur 1, 400 Ísafjörður Kort
fös 9. okt 2026 16:00
Bústaðu viðburðinn!Stuttmyndir II Q&A session - Spurt og svarað
Útlagar
Leikstjóri: Elva Rún Róbertsdóttir
Ellefu ára Saga ferðast á puttanum til Reykjavíkur með pönkflakkaranum Gísla í leit að tónlist og frelsi. Ferðin tekur óvænta stefnu þegar þau bjarga konu í miðbænum úr klóm mannræningja.
The Dead are Noisy
Leikstjóri: Ehab Awwadawnan
Nærri landamærum Grikklands og Tyrklands deila þrettán manns á flótta sendibíl. Þar takast á ótti, minningar og von, á meðan einn maður berst fyrir lífi sínu á ferðalagi sem á eftir að móta hann upp á nýtt.
Madelene
Leikstjóri: Bryndis Arna Sigurdardottir
Neikvæðar hugsanir, kvíði og sjálfshatur draga Madelene inn í vítahring og gera henni erfitt fyrir að einbeita sér að öðru en neikvæðu röddinni í höfðinu á sér. Innri gagnrýnandinn tekur völdin, en spurningin er: myndi hún virkilega tala svona við yngri sjálfa sig?
Allt fyrir þig
Leikstjóri: Salvör Bergmann
Ungur fíkniefnasali þarf að taka sig á þegar móðir hans, sem glímir við fíkn, kemur úr fangelsi í heimsókn á afmælisdaginn hans. Þegar hann reynir að ganga frá lausum endum leiða ákvarðanir hans af stað atburðarás sem stofnar þeim sem honum þykir vænt um í bráða hættu.
Unsavable
Leikstjóri: Javier Marco
Mauro hefur boðið Angel, ókunnuga manninum sem hann bjargaði frá dauða nokkrum vikum áður, í kvöldverð á glæsilegum veitingastað.