Saumum Saman Ísland

Saumum Saman Ísland

Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort

lau. 05.09.2026 13:00

Þessi sýning er afrakstur félagslegs listaverkefnis þar sem yfir 100 Reykvíkingar komu saman og saumuðu eitt stórt bútasaumsteppi. Verkefnið, sem tók eitt ár í framkvæmd, fór fram ýmist á Borgarbókasafni eða Sjóminjasafninu. Yfirleitt er bútasaumur til að endurnýta og endurvinna textílafganga um leið og persónulegar sögur og menningarleg sjálfsmynd eru tjáðar sjónrænt með litum og mynstri. Þetta bútasaumsteppi var eingöngu gert úr endurunnum rúmfötum.
Verkefnið sameinaði ýmsa aðila – m.a. Íslenska bútasaumsfélagið, saumahópinn Saumó (hópur flóttakvenna á Íslandi), Borgarsögusafn- og Borgarbókasafn Reykjavíkur, Textílfélag Íslands og nemendur frá Myndlistaskólanum í Reykjavík – til að stuðla að innihaldsríkum samskiptum milli eldri íbúa og innflytjenda. Með þessu samstarfi skapaði verkefnið tækifæri fyrir samræður, gagnkvæman lærdóm og sameiginlegt höfundarverk. Takmarkað upplag af bók um verkefnið verður til sölu á opnuninni.
Christalena Hughmanick ólst upp í Lancaster-sýslu í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum þar sem hún lærði um bútasaum af Amish-fólkinu sem bjó í nágrenninu. Með kennslu og sameiginlegri reynslu hafa einstaklings- og hópverkefni hennar alið af sér einskonar samfélög. Þessar aðferðir í félagslegri listiðkun þróuðust í MFA-námi hennar við School of the Art Institute of Chicago (2010–12). Verk hennar hafa verið sýnd á alþjóðavettvangi og hún hefur verið gestalistamaður hjá B28 Nordic Culture Point, American Academy í Róm og Moholy-Nagy Művészeti Egyetem í Búdapest. Starf hennar hefur meðal annars verið stutt af Þróunarsjóði innflytjenda, Fulbright-stofnuninni, utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna, Grainger Marburg og Lenore Tawney-stofnuninni.
Nánari upplýsingar:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6242
Christalena Hughmanick
christalena.hughmanick@gmail.com
www.christalenahughmanick.com.