Saumó - sýningaropnun

Saumó - sýningaropnun

Hönnunarsafn Íslands, Garðatorg 1, 210 Garðabær Kort

lau. 29.08.2026 16:00

Saumaklúbbar hafa verið hluti af íslensku samfélagi frá því um aldamótin 1900. Í grunninn byggja þeir á reglulegum, skipulögðum samverustundum kvenna þar sem hannyrðir, samtöl, skoðanaskipti, þekkingarmiðlun og veitingar eru í aðalhlutverki. Hlutverk klúbbanna og form hafa breyst með tíðarandanum. Hér verður skyggnst inn í fimm ólíka klúbba í samtímanum.

Saumó er hluti af sýningarröðinni Heimsókn á Hönnunarsafni Íslands. Gestir fá að upplifa sig sem „flugu á vegg“ og gægjast inn í ólíka saumaklúbba. Safneignin verður skoðuð í nýju ljósi með því að setja handverk og saumaklúbba í samhengi við íslenska hönnunarsögu og heimilið.

Sýningin verður opnuð á 50 ára Afmælishátíð Garðabæjar.

Flytjendur

  • Garðabær
    Garðabær
    Í Garðabæ er hægt að njóta útivistar í óspilltri náttúru sem og menningar en um leið er