Samvera

Samvera

Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort

fös 9. okt 2026 11:00

Bústaðu viðburðinn!

Samvera eru vikulegir viðburðir sem sameina íslenskunema og innfædda til að spjalla, kynnast og læra hver af öðrum.

Alla föstudaga 4. september - 4. desember, kl. 11.00 til 13.00, Gerðuberg

https://borgarbokasafn.is/samvera

Saman kynnumst við yfir kaffibolla og spjöllum til að æfa okkur í tungumálinu í öruggu og vinalegu umhverfi eða bara til að kynnast nýju fólki. Stundum förum við í léttan göngutúr í nágrenninu og í Elliðaárdalnum.

Þegar veðrið er mjög slæmt erum við inni til að lesa fréttir á auðskiljanlegri íslensku, ræða um hvað er að gerast á Íslandi og læra um mikilvæg málefni sem gætu haft áhrif á okkur. Einnig verður í boði að spila borðspil.

Bókasafnið er á efri hæðinni í húsi við Gerðuberg 3-5 í Breiðholti.

Strætóar: 3, 4, 12, 17 (stoppistöð: FB).

Viðburðirnir eru leiddir af kennurum í íslensku sem annað mál.

Þátttaka ókeypis, engin skráning, bara mæta.

Frekari upplýsingar

Fanny Sissoko: fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is