Samsýning framhaldsskólanna 2026

Samsýning framhaldsskólanna 2026

Saga - Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Hagatorg 1, 107 Reykjavík Kort

fös 27. nóv 2026 10:00

Bústaðu viðburðinn!

Samsýning framhaldsskólanna verður haldin dagana 27. nóvember til 3. desember á Sögu, nýju húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, við Hagatorg.

Formleg sýningaropnun fer fram 27. nóvember kl. 13:00 - 14:00

Á Samsýningunni gefst nemendum tækifæri til að sýna almenningi hugmyndir sínar og sköpun af hvaða tagi sem er - og efla tengslanet sitt til framtíðar.

220 nemendur úr þrettán framhaldsskólum víðsvegar af landinu taka þátt í sýningunni í ár og um 250 verkefni af öllu tagi verða til sýnis.

Markmið sýningarinnar er að sýna fram á mikilvægi þess að styðja við og efla STEAM samþættingu í íslensku samfélagi og menntun á sviði sjálfbærni og nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs.

Samsýningin gefur jafnframt nemendum og kennurum tækifæri á að kynnast starfsemi annarra framhaldsskóla og efla tengsl sín á milli.

Sýning verður opin daglega 27. nóv. - 3. des.

Opið kl. 10:00 - 18:00 virka daga

Opið kl. 10:00 - 17:00 helgina 29. - 30. nóv.

Eftirfarandi skólar taka þátt:

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Fjölbrautaskóli Vesturlands

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ

Borgarholtsskóli

Menntaskóli Borgarfjarðar

Menntaskóli í tónlist

Myndlistaskólinn í Reykjavík

Tækniskólinn

Verzlunarskóli Íslands

Verkmenntaskólinn á Akureyri

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ

Verið öll hjartanlega velkomin!

Flytjendur